Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 22. nóvember 2019 18:30
Elvar Geir Magnússon
Reynir Juventus við Eriksen í janúar?
Christian Eriksen.
Christian Eriksen.
Mynd: Getty Images
Ítalska blaðið Corriere dello Sport segir að Ítalíumeistarar Juventus gætu gert tilboð í Christian Eriksen, leikmann Tottenham, í janúarglugganum.

Sagt er að nýr stjóri Tottenham, Jose Mourinho, hyggist ekki standa í vegi fyrir honum.

Eriksen opinberaði það síðasta sumar að hann vildi færa sig um set og takast á við nýjar áskoranir. Núgildandi samningur hans rennur út í júní á næsta ári.

Juventus skoðar möguleikana á því að fá þennan 28 ára danska landsliðsmann í janúar eða á frjálsri sölu næsta sumar.

Eriksen hefur verið orðaður við fleiri félög, meðal annars Real Madrid og Manchester United.
Athugasemdir
banner
banner