Fotbolti.net
06.10.26 - 09:36
Kári Snorrason

Bætist á meiðslalista Víkings - Hrannar Snær ristarbrotinn

Gekkst undir aðgerð í gærmorgun.

Gekkst undir aðgerð í gærmorgun.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hrannar Snær Magnússon mun ekki spila frekar með Íslandsmeisturum Víkings á tímabilinu þar sem hann er ristarbrotinn.

Þetta staðfestir Hrannar í samtali við Fótbolta.net. Hann brotnaði á æfingu fyrir um viku síðan og gekkst undir aðgerð í gærmorgun.

Búist er við að Hrannar snúi aftur á völlinn eftir um 3-4 mánuði. Þrír leikir eru eftir af Bestu deildinni en Víkingur tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í síðasta leik fyrir landsleikjahlé, gegn KR.
Hrannar gekk til liðs við Víking í sumarglugganum eftir rúmlega hálfs árs dvöl í Noregi þar sem hann lék með Kristiansund í norsku úrvalsdeildinni.

Ásamt Hrannari eru þeir Óskar Borgþórsson, Tarik Ibrahimagic, Elías Már Ómarsson og Sveinn Gísli Þorkelsson á meiðslalista Víkings og munu þeir ekki leika með liðinu meira á tímabilinu.
Víkingar fögnuðu innilega er þeir tryggðu sér titilinn á Meistaravöllum.

Víkingar fögnuðu innilega er þeir tryggðu sér titilinn á Meistaravöllum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta karla - Efri hluti

#LiðLmunStig
1Víkingur R.27+5164
2KR27+3556
3Fram27+947
4ÍA27-138
5Breiðablik27-336
6Keflavík27-1130
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.