Fotbolti.net
06.10.26 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Juve og Atlético vilja kantmann Arsenal

Juve og Atlético vilja kantmann Arsenal
Canon

Mynd: EPA

The Telegraph greinir frá því að evrópsku stórveldin Atlético Madrid og Juventus séu áhugasöm um Noni Madueke, kantmann Arsenal og enska landsliðsins.
Trent, Palmer og Rio í enska landsliðshópnum
TENGT EFNI

Trent, Palmer og Rio í enska landsliðshópnum

Madueke lék stórt hlutverk er Arsenal varð Englandsmeistari á síðustu leiktíð og komst alla leið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Hann stóð sig gríðarlega vel í fjarveru Bukayo Saka sem var að glíma við meiðsli en nú er Saka búinn að endurheimta byrjunarliðssætið.

Madueke fær því minni spiltíma en áður og gæti skipt um félag í leit sinni að auknum leiktíma.

Madueke er 24 ára gamall og var ekki valinn í landsliðshóp Thomas Tuchel í landsleikjahlénu langa, þrátt fyrir að hafa verið partur af enska hópnum sem fór á HM í sumar.

Arsenal keypti Madueke úr röðum Chelsea fyrir 52 milljónir punda í fyrrasumar og er leikmaðurinn með fjögur ár eftir af samningi við Englandsmeistarana.

Madueke hefur aðeins byrjað tvo leiki á tímabilinu. Hann lék 60 mínútur í leiknum um Samfélagsskjöldinn og skoraði svo í 4-2 sigri gegn Ipswich Town í deildabikarnum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.