Fotbolti.net
05.10.26 - 18:24
Ívan Guðjón Baldursson

Oliver aðstoðar Dóra hjá Val

Oliver aðstoðar Dóra hjá Val
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eins og greint hefur verið frá mun Halldór Árnason taka við þjálfun á meistaraflokki karla hjá Val eftir lok tímabils. Heimildir Fótbolta.net segja að Oliver Sigurjónsson verði aðstoðarþjálfarinn hans.
Oliver Sigurjóns kom inn í þjálfarateymi Blika
TENGT EFNI

Oliver Sigurjóns kom inn í þjálfarateymi Blika

Oliver og Dóri þekkjast vel eftir að hafa starfað saman hjá Breiðabliki í um fimm ár. Dóri var aðstoðarþjálfari Blika í fjögur ár og tók svo við sem aðalþjálfari með Oliver í leikmannahópnum. Þeir urðu Íslandsmeistarar saman 2022 og 2024.

Oliver er fæddur 1995 og lagði takkaskóna á hilluna eftir að hafa spilað með Aftureldingu í fyrra. Hann tók svo við starfi hjá Augnabliki, venslaliði Breiðabliks, síðasta vetur og stýrði liðinu í sumar.

Oliver lék tvo A-landsleiki fyrir Ísland á ferli sínum og var um tíma á mála hjá Bodö/Glimt í Noregi.

Heimildir Fótbolta.net segja að Oliver sé þegar búinn að semja við Val um kaup og kjör.
Oliver aðstoðar Dóra hjá Val
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.