05.10.26 - 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
Halli Björns bætist við teymið hjá Val

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þjálfarateymi Vals fyrir næstu leiktíð er að taka á sig góða mynd þar sem annar fyrrum Bliki hefur bæst við teymið, markmannsþjálfarinn Haraldur Björnsson. Þetta herma heimildir Fótbolta.net.

TENGT EFNI
Oliver aðstoðar Dóra hjá Val
Halli hefur verið markmannsþjálfari Breiðabliks síðastliðin þrjú ár en tilkynnti stjórn félagsins á dögunum að hann væri að færa sig um set til að taka við starfi hjá Val.
Halli ólst upp hjá Val og lék fyrir meistaraflokk áður en hann flutti til útlanda til að spila fyrir Sarpsborg, Fredrikstad, Östersund og Lilleström meðal annars áður en hann hélt aftur heim til Íslands og endaði ferilinn hjá Stjörnunni. Halli er 37 ára gamall og lagði markmannshanskana á hilluna fyrir fjórum árum.
Hann þótti mikið efni á sínum tíma og var hjá Hearts í Skotlandi frá 16 til 19 ára aldurs ásamt því að spila 19 leiki fyrir U21 landslið Íslands. Hann lék einn A-landsleik á ferlinum.
Halli mun starfa í þjálfarateymi Halldórs Árnasonar hjá Val en þeir urðu Íslandsmeistarar saman með Breiðabliki sumarið 2024. Oliver Sigurjónsson, sem var partur af Íslandsmeistaraliðinu 2024, verður aðstoðarþjálfari Vals.