AIK 0 - 2 Örebro
Kolbeinn Sigþórsson kom inn á sem varamaður á 64. mínútu þegar AIK tapaði gegn Örebro á heimavelli.
Þetta var áttundi leikurinn í röð sem Kolbeinn kom inn á sem varamaður hjá sænska félaginu.
Hinn þrítugi Kolbeinn hefur verið í mikilli markaþurrð og ekki skorað mark frá því í lokaleiknum á síðustu leiktíð, fyrir rúmu ári síðan.
AIK er með tapinu úr allri baráttu um Evrópusæti þegar liðið á tvo leiki eftir af deildinni.
Athugasemdir