Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 22. nóvember 2022 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Asensio að renna út á samningi: Íhugaði aldrei Barca
Asensio gerði 10 mörk í 31 deildarleik er Real Madrid vann La Liga í vor.
Asensio gerði 10 mörk í 31 deildarleik er Real Madrid vann La Liga í vor.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Spænski kantmaðurinn Marco Asensio hefur skorað 52 mörk í 250 keppnisleikjum með Real Madrid.


Hann skoraði 12 mörk í 42 leikjum á síðustu leiktíð og er kominn með 3 mörk í 15 leikjum á þessu tímabili en samningur hans við Real Madrid rennur út næsta sumar.

Asensio hefur verið orðaður við ýmis félög og meðal annars erkifjendurna í Barcelona.

„Barcelona var aldrei möguleiki. Mér líður vel hjá Real Madrid en það er aldrei að vita hvað gerist í framtíðinni," sagði Asensio, sem er með spænska landsliðshópnum á HM, í gær.

„Hvað sem er sagt þá er það ekki satt að ég íhugaði félagsskipti til Barca á nokkrum tímapunkti."

Það virðist ólíklegt að Asensio semji við Real Madrid en ýmis stórlið innan og utan Spánar hafa áhuga á að krækja í leikmanninn.


Athugasemdir
banner
banner
banner