Adolf Daði gerir þriggja ára samning (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hinn bráðefnilegi Adolf Daði Birgisson er búinn að framlengja samning sinn við Stjörnuna út tímabilið 2026.
Adolf, betur þekktur sem Dolli, er aðeins 19 ára gamall og hefur verið mikilvægur hlekkur í liði Stjörnunnar og U19 landsliði karla.
Hann spilaði 26 af 27 leikjum Stjörnunnar í Bestu deildinni í ár eftir að hafa stigið sín fyrstu skref með meistaraflokki árið 2019.
Dolli á 63 leiki að baki fyrir Stjörnuna og verður gríðarlega spennandi að fylgjast með honum þróa sinn leik í Bestu deildinni í sumar.
Þá hefur hann spilað 18 leiki fyrir yngri landslið Íslands.