Fotbolti.net
22.12.23 - 17:58
Ívan Guðjón Baldursson

Arnór búinn að skrifa undir nýjan samning við Blackburn (Staðfest)

Arnór búinn að skrifa undir nýjan samning við Blackburn (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Arnór Sigurðsson er búinn að skrifa undir nýjan samning við Blackburn Rovers sem gildir út næstu leiktíð.
Arnór gekk til liðs við Blackburn á eins árs samningi og er búinn að skora fimm mörk í 16 leikjum fyrir félagið.

Það tók hann ekki langan tíma að aðlagast lífinu á Englandi. Hann kom til félagsins meiddur eftir að hafa verið hjá Norrköping í sænska boltanum og var búinn að skora á innan við tíu mínútum í sínum fyrsta leik fyrir félagið.

Hann skoraði aftur í næsta leik, sem var á heimavelli, og setti svo tvennu í sigri á útivelli gegn QPR tíu dögum síðar.

Hann hefur þó ekki verið með fast sæti í byrjunarliði Blackburn á tímabilinu, en spilaði 90 mínútur í síðustu tveimur leikjum liðsins. Hann skoraði í 2-1 sigri á heimavelli gegn Bristol City og spilaði svo allan leikinn í 4-0 tapi gegn Southampton.

Blackburn er um miðja deild, með 31 stig eftir 22 umferðir - fimm stigum frá umspilssæti.

„Við erum mjög ánægðir með að hafa Arnór Sigurðsson hérna næstu 18 mánuðina. Hann býr yfir miklum tæknilegum gæðum og er mikilvægur hlekkur í liðinu okkar," sagði Gregg Broughton, yfirmaður fótboltamála hjá Blackburn.

„Við viljum þakka umboðsmönnunum Magnúsi og Bjarka sérstaklega fyrir þeirra viðkomu að samkomulaginu."

Arnór er 24 ára gamall og hefur skorað 2 mörk í 30 A-landsleikjum.
Arnór búinn að skrifa undir nýjan samning við Blackburn (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.