Fram fær Mackenzie Smith úr háskólaboltanum (Staðfest)

Mynd: Fram

Mynd: Fram

Fram heldur áfram að styrkja leikmannahópinn sinn fyrir komandi átök í Lengjudeild kvenna og var félagið að krækja í Mackenzie Smith frá Bandaríkjunum.
Mackenzie leikur á miðjunni og ber það með sér að vera hávaxin, sterk og gríðarlega vinnusöm. Hún er bæði góð sóknarlega og varnarlega og býr yfir leiðtogahæfileikum.
Hún var fyrirliði háskólans í Tennessee og er annar leikmaðurinn sem gengur til liðs við Fram úr háskólaboltanum í vetur, eftir komu markvarðarins Lili Berg sem var fyrirliði hjá BGSU í Ohio.
Óskar Smári Haraldsson, þjálfari meistaraflokks kvenna, er gríðarlega ánægður með liðsstyrkinn.
„Bara geggjað. Þjálfarateymið er hæst ánægt að við séum að tryggja þjónustu bæði Mackenzie Smith og Lili Berg fyrir næsta tímabil. Þær eiga helling sameiginlegt, báðar verið fyrirliðar í skólum sínum út í bandarikjunum og eru all-American leikmenn sem eru báðar að fara i fyrsta skipti í atvinnumennsku. Þær eru með sterkt hugarfar og með mikla leiðtogahæfileika sem mun klárlega nýtast okkur vel. Við bindum miklar vonir við komu þeirra beggja," sagði Óskar Smári meðal annars.