Luis Suárez til Inter Miami (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: EPA

Mynd: Getty Images
Inter Miami er búið að staðfesta komu Luis Suárez til félagsins, þar sem þessi goðsagnakenndi framherji mun endursameinast stórstjörnunum Lionel Messi, Sergio Busquets og Jordi Alba sem unnu ógrynni titla ásamt Suárez á dvöl þeirra hjá Barcelona.
Inter stefnir hátt eftir slaka byrjun á lífinu í bandarísku MLS deildinni, en liðið vann norður-ameríska deildabikarinn, þar sem lið frá Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó keppast um titilinn, eftir komu Messi, Busquets og Alba.
Þeim tókst þó ekki að tryggja liðinu sæti í úrslitakeppni MLS deildarinnar, en það er stefnan sem hefur verið sett fyrir næstu leiktíð - að vinna deildina.
Suarez verður 37 ára í janúar og hefur á undanförnum árum leikið fyrir Atlético Madrid, Nacional og Gremio.
Hann skoraði átta mörk og gaf þrjár stoðsendingar í fjórtán deildarleikjum með Nacional í Úrúgvæ í fyrra en skipti svo yfir til Gremio í Brasilíu.
Hann stóð sig gríðarlega vel þar og kom að 43 mörkum í 53 leikjum. Hann hjálpaði Gremio að ná öðru sæti deildarinnar, þar sem liðið endaði tveimur stigum eftir Palmeiras.
Suarez gerir eins árs samning við Inter, með möguleika á auka ári. Hann hafnaði þremur öðrum tilboðum til að endursameinast gömlu liðsfélögunum.

Bienvenido Luis Suárez, al sueño de Miami ???? pic.twitter.com/Vi3bJZ679f
— Inter Miami CF (@InterMiamiCF) December 22, 2023

Mynd: EPA