Fotbolti.net
22.12.23 - 12:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Sigurpáll Melberg snýr heim í Aftureldingu (Staðfest)

Sigurpáll í leik með Fjölni.

Sigurpáll í leik með Fjölni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Sigurpáll Melberg Pálsson hefur gert tveggja ára samning við Aftureldingu og mun spila með liðinu í Lengjudeildinni næsta sumar.
Sigurpáll er 27 ára varnar- og miðjumaður sem lék upp alla yngri flokkana hjá Aftureldingu. Sigurpáll kemur til Aftureldingar frá danska félaginu FA 2000 en hann lék áður með Fjölni, Fram og HK.

Samtals hefur Sigurpáll skorað sex mörk í 100 leikjum í næstefstu deild á Íslandi á ferli sínum auk þess sem hann á átján leiki að baki í efstu deild.

„Ég hef fylgst náið með liðinu síðan ég var hérna fyrir átta árum síðan. Ég er hrikalega hrifinn af spilamennsku liðsins og hvernig þetta er innan sem utan vallar. Við eigum ekki að stefna á neitt annað en toppbaráttuna,” sagði Sigurpáll eftir undirskriftina.

Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, segir: „Það er frábært þegar öflugir leikmenn sem eru uppaldir hjá Aftureldingu vilja koma aftur á heimaslóðir. Sigurpáll hefur æft með okkur undanfarnar vikur og fallið vel inn í hópinn. Sigurpáll er með mikla reynslu sem mun nýtast okkur vel í baráttunni í Lengjudeildinni næsta sumar.”

Afturelding endaði í öðru sæti Lengjudeildarinnar í sumar en tapaði gegn Vestra í úrslitaleik umspilsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.