Mikel Arteta, stjóri Arsenal, hefur staðfest að félagið sé að vinna í því að fá til sín leikmenn í janúarglugganum.
Arteta og hans menn hafa verið sterklega orðaðir við Martin Odegaard sem er á mála hjá Real Madrid.
Arsenal vill fá Odegaard á láni frá Real en hann fær afar takmarkað að spila undir Zinedine Zidane.
Arsenal datt úr leik í enska bikarnum í dag en liðið tapaði 1-0 gegn Southampton á St. Mary's.
„Ég veit ekki. Við spiluðum leik í dag og síðan í gærkvöldi hef ég ekki fengið neinar fréttir," sagði Arteta.
„Ég mun örugglega fá símtöl í dag og við fáum að sjá hvar við stöndum með þessi samningamál."
Athugasemdir