Fotbolti.net
23.01.24 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

AC Milan lánar Luka Romero til Spánar (Staðfest)

AC Milan lánar Luka Romero til Spánar (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Almería er búið að krækja í Luka Romero, 19 ára kantmann AC Milan og U20 landsliðs Argentínu.
Romero kemur til félagsins á lánssamningi sem gildir út tímabilið og á að hjálpa Almeria í fallbaráttunni í La Liga, þar sem liðið situr á botninum með 6 stig eftir 21 umferð.

Almeria er tíu stigum frá öruggu sæti og þarf að girða sig í brók á seinni hluta tímabils til að eiga einhvern möguleika á að bjarga sér frá falli. Liðið er enn sigurlaust í spænsku deildinni.

Það er enginn kaupmöguleiki sem fylgir með lánssamningnum og mun Romero því snúa aftur til Milan næsta sumar.

Romero hefur komið við sögu í fimm leikjum með Milan á tímabilinu, en hann var áður hjá Lazio og kom við sögu í 21 leik áður en hann skipti til Milan á frjálsri sölu í fyrrasumar.

AC Milan lánar Luka Romero til Spánar (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Alaves000
1Real Sociedad2+46
2Athletic000
2Barcelona2+46
3Atletico Madrid2+44
3Atletico Madrid000
4Girona2+14
4Barcelona000
5Betis000
5Levante2+14
6Celta000
6Real Madrid1+33
7Deportivo000
7Eibar1+13
8Leganes1+13
8Elche000
9Espanyol000
9Valencia1+13
10Getafe000
10Betis2-13
11Espanyol101
11Levante000
12Malaga000
12Sevilla101
13Osasuna000
13Athletic101
14Racing Santander000
14Getafe101
15Deportivo2-31
15Rayo Vallecano000
16Celta2-20
16Real Madrid000
17Malaga2-20
17Mallorca38-1042
17Real Sociedad000
18Sevilla000
18Alaves2-30
19Villarreal2-40
19Valencia000
19Girona38-1641
20Villarreal000
20Oviedo38-3429
20Las Palmas2-50
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.