Aston Villa fær ungan bakvörð frá Red Star (Staðfest)

Kosta Nedeljkovic

Mynd: EPA

Kosta Nedeljkovic

Mynd: EPA
Aston Villa hefur staðfest að félagið hefur fest kaup á bakverðinum Kosta Nedeljkovic frá serbneska félaginu Red Star.
Kaupverðið er óuppgefið en það er talið vera um 9 milljónir evra.
Nedeljkovic er 18 ára gamall og mun klára tímabilið á láni hjá Red Star. Hann hefur leikið 18 leiki fyrir liðið á sínu fyrsta tímabili með aðalliðinu.
Hann á að baki 20 landsleiki fyrir yngri landslið Serbíu.





