Dan Gore til Port Vale á láni frá Man Utd (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Hinn 19 ára gamli Dan Gore er genginn til liðs við Port Vale á láni frá Man Utd.
Gore er miðjumaður en hann spilaði sinn fyrsta leik í úrvalsdeildinni þegar hann kom inn á sem varamaður á annan í jólum í endurkomusigri United gegn Aston Villa.
„Dan er mjög teknískur leikmaður og er með keppnisskapið til að koma og berjast um sæti á miðjunni hjá okkur. Hann er með mikinn vilja til að nýta tækifærið hér og læra af reynslumeiri leikmönnum til að verða besta útgáfan af sjálfum sér," sagði Andy Crosby stjóri Port Vale.
Port Vale situr í 18. sæti þriðju efstu deildarinnar á Englandi með 30 stig eftir 25 leiki.
???? HERE. WE. GO. https://t.co/jHAdUzG01I pic.twitter.com/uvjYDQ7XzF
— Port Vale FC (@OfficialPVFC) January 23, 2024





