Keyptur til Cardiff og fer beint til Freysa (Staðfest)

Ryotaro Tsunoda.

Mynd: Kortrijk

Ryotaro Tsunoda.

Mynd: Kortrijk
Freyr Alexandersson, þjálfari Kortrijk í Belgíu, hefur fengið japanska varnarmanninn Ryotaro Tsunoda frá Cardiff á láni út yfirstandandi tímabil.
Tsunoda mun hjálpa Kortrijk í fallbaráttunni í Belgíu en liðið er sem stendur á botni belgísku úrvalsdeildarinnar.

Freyr nýtur góðs af því að Cardiff, sem er í ensku B-deildinni, er með sama eiganda og Kotrijk: Hinn skrautlega Vincent Tan.
Það er ágætis samstarf þarna á milli en Cardiff var að kaupa Tsunoda frá Yokohama F. Marinos í Japan. Hann stoppar stutt í Wales því hann fer beint til Kortrijk.
Þetta er annar leikmaðurinn sem Kortrijk fær frá Japan núna í janúar. Varnarmaðurinn Haruya Fujii kom á dögunum á láni frá Nagoya Grampus.
Freyr er búinn að stýra Kortrijk í einum leik en það var sigurleikur gegn Standard Liege um síðustu helgi.