Mazilu kominn til Brighton og lánaður út (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Kantmaðurinn Adrian Mazilu er genginn til liðs við Brighton & Hove Athletic eftir að félagið keypti hann síðasta sumar.
Mazilu er táningur frá Rúmeníu sem var aðeins 17 ára þegar Brighton keypti hann og mátti því ekki skipta til Englands strax. Hann átti 18 ára afmæli í september og gat því flutt til Brighton í janúarglugganum.
Mazilu kemur úr röðum Farul Constanta í heimalandinu en er sendur til Hollands á lán. Þar mun hann leika fyrir Vitesse Arnhem, sem leikur í efstu deild og er þekkt fyrir að nota mikið af ungum lánsmönnum úr enska boltanum.
Mazilu verður leikmaður Vitesse út tímabilið og mun svo, ef allt gengur að óskum, reyna að berjast um byrjunarliðssæti úti á kantinum hjá Brighton næsta haust.

?????? pic.twitter.com/IHPGae5hkr
— Vitesse (@MijnVitesse) January 22, 2024