
Militao skrifar undir nýjan samning við Real Madrid (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Eder Militao hefur skrifað undir nýjan samning við Real Madrid sem gildir til ársins 2028 en hann átti aðeins rúmt ár eftir af samningi sínum áður en hann var framlengdur.
MIlitao er 26 ára gamall brasilískur miðvörður en hann gekk til liðs við Real Madrid frá Porto sumarið 2019.
Hann hefur spilað 143 leiki fyrir spænska félagið og skorað 11 mörk. Hann hefur unnið spænsku deildina tvisvar, bikarinn einu sinni og Meistaradeildina einu sinni.
Militao sleit krossband í fyrstu umferð spænsku deildarinnar og hefur því ekkert komið við sögu síðan þá.





