Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 23. febrúar 2021 18:38
Aksentije Milisic
Kristian Nökkvi framlengir við Ajax
Mynd: Hulda Margrét
Hinn ungi og efnilegi Kristian Nökkvi Hlynsson hefur framlengt samning sinn við hollenska stórliðið Ajax.

Kristian gekk í raðir Ajax frá Breiðablik í janúar á síðasta ári en þá skrifaði hann undir tveggja og hálfs árs samning við félagið. Nú hefur hann framlengt samning sinn til ársins 2023.

Kristian hefur spilað með u17 ára liði Ajax og Jong Ajax, sem er varalið liðsins. Fyrr á þessu árið var Kristian kallaður upp á æfingu hjá aðalliðinu og verður gaman að fylgjast með þessum spennandi leikmanni í framtíðinni.

Kristian, sem er sextán ára gamall, er yngsti leikmaður (þá 15 ára og 248 daga gamall) í sögu Breiðabliks til þess að spila leik í efstu deild karla.


Athugasemdir
banner
banner