Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
banner
   þri 23. mars 2010 12:00
Hafliði Breiðfjörð
Hin hliðin: Berglind Björg Þorvaldsdóttir (Breiðablik)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þá er komið að því að sjá hina hliðina á þekktum fótboltamanni eins og venja er í hádeginu á þriðjudögum. Að þessu sinni er það Berglind Björg Þorvaldsdóttir framherji Breiðabliks sem sýnir á sér hina hliðina.

Berglind Björg hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið 44 leiki í deild og bikar með meistaraflokki og skorað í þeim 20 mörk. Þá hefur hún leikið 4 leiki með A-landsliði Íslands, alla á þessu ári.

Smellið hér til að sjá hina hliðina á fleiri leikmönnum

Fullt nafn: Berglind Björg Þorvaldsdóttir

Gælunafn: BB, Begga, Bebba, Blöð.

Aldur: 18 ára.

Gift / sambúð? Single
Börn: Nei

Hvað eldaðir þú síðast? Pastarétt

Hvað vilt þú fá á pizzuna þína? Skinku, sveppi, rjómaost og lauk.

Uppáhaldssjónvarpsefni? Friends, Sex And The City, Grey’s Anatomy, Desperate Housewives, Stelpurnar og fleiri.

Besta bíómyndin? Alltof margar sem koma til greina!

Uppáhaldsútvarpsstöð: X-ið og FM 957

Hver er uppáhalds platan þín? In Rainbows með Radiohead, IV með Hjálmum og Lungs með Florence And The Machine.

Uppáhaldsdrykkur? Rauður Kristall Plús og Trópí

Uppáhalds vefsíða? Fótbolti.net og Facebook

Ertu hjátrúarfull(ur) fyrir leiki ( ef já, hvernig þá)? Jájájá, borða alltaf epli fyrir leiki, fer alltaf fyrst í vinstri takkaskóinn og reyni alltaf að borða það sama fyrir leiki.

Hvernig er best að pirra andstæðinginn? Skora og vera miklu betri.

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með? Pass..

Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum? Elín Anna Steinarsdóttir.

Erfiðasti andstæðingur? Ég sjálf

Ekki erfiðasti andstæðingur? Nefni engin nöfn, en nokkrar í Blikaliðinu í reit! og Arna Sif í Singstar.. hrikalegt

Besti samherjinn? Allar stelpurnar í Breiðablik :)

Sætasti sigurinn? Þegar við (U19) komumst áfram í úrslitakeppnina eftir að ég skoraði jöfnunarmarkið á 87. mínutu á móti Póllandi.

Mestu vonbrigði? Að hafa tapað fyrir Val í úrslitaleiknum í Visa bikarnum á Laugardalsvelli.

Hvað er þitt uppáhaldslið í enska boltanum? Manchester United

Uppáhaldsknattspyrnumaður? Rooney, Messi og Gunnar Heiðar Þorvaldsson

Besti íslenski knattspyrnumaðurinn fyrr og síðar? Ásthildur Helgadóttir.

Efnilegasti knattspyrnumaður landsins? Eyþór Örn Þorvaldsson

Fallegasti knattspyrnumaðurinn í deildinni? Nokkrir sem koma til greina

Fallegasta knattspyrnukonan? Sara Björk

Grófasti leikmaður deildarinnar? Pála í Val

Besti íþróttafréttamaðurinn? Allir mjög fínir

Hver er mesti höstlerinn í liðinu? Hmm…

Hefurðu skorað sjálfsmark? Nei

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik:
Það var mjög skemmtilegt atvik þegar við vorum að keppa einhverntímann uppí kór og ein af mínum liðsfélögum var á túr og svo byrjaði leikurinn og...

Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki? 15 ára

Hvernig finnst þér Fótbolti.net? Góð síða

Kíkir þú oft á Fótbolti.net? Oft á dag

Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Þetta er bara fínt eins og þetta er núna.

Hvern vildir þú sjá á sviði? (tónleikum) Úff erfitt.. en langar lang mest að fara á tónleika með Radiohead, Coldplay, Arctic Monkeys, Celine Dion og væri alveg til í að fara aftur á Muse.

Hvað finnst þér leiðinlegast að gera á æfingu? Skokka niður og teygja á.

Hver er frægasta persónan sem þú ert með í farsímanum þínum? Gunnar Heiðar. En ég á eftir að stela númerinu hans Zlatans úr símanum hennar Ernu!

Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í öllum heiminum? Vestmannaeyjar

Hversu lengi ertu að koma þér í gang á morgnanna? Misjafnt

Hver er uppáhaldsÍÞRÓTTAMAÐURINN þinn? Ruud Van Nistelrooy og Michael Jordan

Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum? Já flest öllum íþróttum, mest handbolta.

Hvenær borgaðir þú þig síðast inn á knattspyrnuleik? Man ekki..

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú? Nike, Vapor

Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla? Náttúrufræði

Vandræðalegasta augnablik? Dettur ekkert í hug í augnablikinu.

Komdu með eina staðreynd um þig sem flestir vita ekki um: Finnst söl vera betra en nammi.
banner
banner
banner