Fotbolti.net
23.03.23 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Lengjubikar kvenna: Haukar byrja af krafti

Lengjubikar kvenna: Haukar byrja af krafti
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Kvennaboltinn

<b>Haukar 4 - 0 ÍR</b>
1-0 Ana Catarina Da Costa Bral ('39 )
2-0 Ana Catarina Da Costa Bral ('45 )
3-0 Anja Ísis Brown ('58 , Sjálfsmark)
4-0 Ana Catarina Da Costa Bral ('71 )

Haukar léku annan leik sinn í Lengjubikarnum í gærkvöldi þegar liðið fékk ÍR í heimsókn í riðli 2 í C deild.

Þetta var fjórði leikur ÍR í mótinu en liðið hafði unnið einn og tapað tveimur þegar kom að þessum leik. Haukar voru með 2-0 forystu í hálfleik en Ana Catarina Da Costa Bral skoraði bæði mörkin.

Eftir tæplega klukkutíma leik var Anja Ísis Brown fyrir því óláni að skora sjálfsmark og Ana Catarina gerði svo endanlega út um leikinn með þriðja marki sínu og fjórða marki Hauka.

ÍR hefur lokið leik en Haukar mæta Völsungi í næstu umferð og enda svo á leik gegn Einherja. Stöðuna í riðlinum má skoða hér fyrir neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.