Fotbolti.net
23.04.23 - 22:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Andri fékk boltann frá Aroni - „Þú tekur hana"

Auglýsing
Andri og Aron fagna markinu

Andri og Aron fagna markinu

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Tilfinningin er mjög góð. Við eigum að fara í alla leikina til vinna og mér fannst við koma mjög vel inn í þennan leik," sagði Andri Rúnar Bjarnason, sóknarmaður Vals, eftir sigur gegn Fram í Bestu deildinni í kvöld.
Andri byrjaði leikinn og spilaði 63 mínútur. Hann skoraði sitt fyrsta mark í búningi Vals af vítapunktinum undir lok fyrri hálfleiks. Aron Jóhannsson átti líklega að taka vítið.

„Ég leit á Aron og hann kom með boltann til mín. Hann sagði: 'Þú tekur hana'."

„Ég var ánægður með það. Það var gott að fá traustið, algjörlega. Hann hefur séð vítið mitt á móti KA um daginn. Hann treysti mér í þetta."

„Það er mikill léttir að skora fyrsta markið fyrir Val en mesti léttirinn er að ná þremur stigum beint eftir tapleik. Það er frábært," sagði Andri.

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.