Fotbolti.net
23.06.20 - 20:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Helgi Sig um Eið Aron: Auðvitað eru góðir menn velkomnir til Eyja

Auglýsing
Helgi Sig um Eið Aron: Auðvitað eru góðir menn velkomnir til Eyja
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
„Við fengum urmul af færum og náum að skora eitt mark. Það vantaði að skora fleiri og það fór aðeins í skapið á mönnum. Við klárum þetta vel í seinni," sagði Helgi Sigurðsson, þjálfari ÍBV, eftir 7-0 sigur sinna manna gegn Tindastóli í 32-liða úrsltum Mjólkurbikarsins.
Gary Martin skoraði þrennu í leiknum. Er Helgi sáttur með sinn mann?

„Já já, ég er ánægður með hvað menn voru að leggja mikið í leikinn. Þetta var góður leikur að mestu leyti. Við þurfum að halda markinu hreinu og skora mörk, þá vinnum við fótboltaleiki."

Helgi var að lokum spurður út í sögusagnir um að Eiður Aron Sigurbjörnsson sé mögulega á leið til ÍBV frá Val.

„Ég hef lítið um það að segja, þú verður að spyrja aðra menn að því. Ég einbeiti mér að þeim hóp sem ég er með núna en auðvitað eru góðir menn velkomnir til Eyja."

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.