Fotbolti.net
23.06.23 - 22:14
Stefán Marteinn Ólafsson

Leifur Andri: Þægilegt undir lokin að vera þremur mörkum yfir og sigla þessu heim

Auglýsing
Leifur Andri Leifsson fyrirliði HK

Leifur Andri Leifsson fyrirliði HK

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

HK tóku á móti Breiðablik í Kórnum í kvöld þegar þessi lið áttust við í 12.umferð Bestu deildarinnar. 

HK hafði svolítið misst flugið fyrir landsleikjapásu en það átti heldur betur eftir að breytast í kvöld þegar Breiðablik komu í heimsókn.

„Ég verð nú að segja að fyrri leikurinn var aðeins sætari en þetta var frábært og þægilegt undir lokin að vera þremur mörkum yfir og sigla þessu bara heim og þetta er æðislegt og alltaf gaman að spila við þá hérna í Kórnum þannig við erum með fínt record á móti þeim sem er bara flott." Sagði fyrirliðinn Leifur Andri Leifsson eftir leikinn gegn Blikum.

„Við erum svolítið bara að leyfa þeim að vera með boltann og svo erum við með okkar móment sem við stígum á þá og reynum að setja á þá pressu og svo vitum við að þeir eru nátturlega alveg svolítið vulnerable þarna fyrir aftan ef að þeir missa boltann og við náum að komast á milli sendinga að þá er svolítið undir okkur komið að finna réttu sendinguna á þeim tímapunkti og brjóta þá aðeins upp og það tókst í dag og við fundum kanntmennina sem að komu með flotta krossa og þetta var bara vel spilaður leikur af okkar hálfu." 

HK vörðust vel og voru virkilega þéttir og sagði Leifur Andri að þetta hafi verið rætt í pásunni að það hafi vantað svolítið upp á baráttuna sem þeir ætluðu að bæta.

„Það hefur vantað svolítið uppá að vinna návígin og vera yfir í baráttunni sem að við þurfum að vera í þessari deild og við stigum upp í dag en það má ekki bara gerast á móti Blikum, það verður að gerast á móti öðrum líka og við verðum þetta virkilega vel í dag."

Nánar er rætt við fyrirliða HK Leif Andra Leifsson í spilaranum hér fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.