Fotbolti.net
23.07.13 - 14:21
Magnús Már Einarsson

Aron Ýmir í Þrótt (Staðfest)

Aron Ýmir í Þrótt (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur hefur fengið bakvörðinn Aron Ými Pétursson á láni frá ÍA.
Aron Ýmir hefur ekki átt fast sæti í liði ÍA í sumar og hann mun nú leika með Þrótti út tímabilið.

Aron hefur komið við sögu í sjö leikjum í sumar en hann hefur allan sinn feril leikið með ÍA.

Þróttarar hafa misst Andra Gíslason, Erling Jack Guðmundsson, Guðjón Gunnarsson og Halldór Hilmisson í þessum mánuði.

Þeir hafa auk Arons fengið Ingólf Sigurðsson á láni frá Val út þetta tímabil.

Heimild: Heimasíða ÍA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.