23.07.13 - 15:00
Magnús Már Einarsson
Emil Berger í Fylki (Staðfest)

Fylkismenn fagna marki gegn Val.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Fylkismenn fagna marki gegn Val.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Sænski miðjumaðurinn Emil Berger hefur fengið leikheimild með Fylki en þessi 22 ára gamli leikmaður kemur á láni frá Örebro í heimalandi sínu.
Berger er uppalinn hjá Degerfors sem leikur í næst efstu deild í Svíþjóð en hefur leikið með Örebro í efstu og næstefstu deild frá árinu 2011.
Þá var hann einnig á mála hjá stórliði AIK um skamma hríð. Berger á að baki 1 leik fyrir U-21 árs landslið Svía.
Fylkismenn hafa verið að styrkja sig að undanförnu en Ásgeir Börkur Ásgeirsson er kominn aftur til félagsins frá Noregi og Davíð Einarsson er kominn frá KR.
Þá mun kantmaðurinn Guy Roger Eschmann frá Tógó fá leikheimild með liðinu á næstu dögum.