23.07.13 - 09:43
Daníel Freyr Jónsson
Gerardo Martino er nýr stjóri Barcelona (Staðfest)

Gerardo Martino.

Mynd: Getty Images

Gerardo Martino.

Mynd: Getty Images
Spánarmeistarar Barcelona hafa staðfest ráðningu Gerardo Martino sem stjóra liðsins.
Martino tekur við af Tito Vilanova sem lét af störfum fyrir helgi vegna veikinda.
Martino tekur við af Tito Vilanova sem lét af störfum fyrir helgi vegna veikinda.
Martino er lítið þekktur í Evrópu, en þessi fimmtugi Argentínumaður er goðsögn í herbúðum Newell\'s Old Boys. Þar lék hann yfir 400 leiki á síðari hluta síðustu aldar, en hann stýrði einnig liðinu undanfarið ár.
Samkvæmt Barcelona hefur Martino skrifað undir tveggja ára samning hjá félaginu og verður hann kynntur til sögunar síðar í dag á blaðamannafundi.
Samkvæmt Barcelona hefur Martino skrifað undir tveggja ára samning hjá félaginu og verður hann kynntur til sögunar síðar í dag á blaðamannafundi.
