Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 23. júlí 2021 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Bernard kominn til Sharjah FC (Staðfest)
Mynd: Everton
Brasilíski kantmaðurinn Bernard er búinn að gera tveggja ára samning við Sharjah FC sem leikur í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Bernard hefur verið hjá Everton síðustu þrjú ár en fann aldrei taktinn hjá félaginu og skoraði í heildina 8 mörk í 84 leikjum.

Hann var næstum farinn til Al Nassr í janúar en þau félagaskipti gengu ekki upp. Núna er hann þó loks farinn frá félaginu.

Bernard sjálfur er ekki talinn hafa viljað yfirgefa Everton en félagið vildi losna við hann af launaskrá. Bernard er ósáttur og telur sér hafa verið ýtt burt frá Everton.

Bernard byrjaði aðeins í fimm af þeim átján leikjum sem hann tók þátt í á síðustu leiktíð. Hann er 28 ára gamall og á 14 leiki að baki fyrir brasilíska landsliðið.
Athugasemdir
banner
banner