Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 23. júlí 2022 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Guardiola um kaup Bayern: Önnur félög þurfa að borga meira
Pep Guardiola
Pep Guardiola
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, segir að hans gamla félag, Bayern München, sé að eiga frábæran glugga í sumar og hafi fengið sterka menn inn þrátt fyrir að hafa misst Robert Lewandowski.

Bayern hefur fengið Sadio Mané, Matthijs de Ligt, Ryan Gravenberch og Noussair Mazraoui í sumar en misst markavélina Lewandowski til Börsunga.

Guardiola hefur ekki miklar áhyggjur af Bayern og segir að hjarta félagsins sé enn til staðar.

„Lewy var mikilvægur leikmaður en hjarta liðsins er enn til staðar í þeim Neuer, Kimmich og Müller. Félagið hefur gert frábær kaup í sumar," sagði Guardiola.

„Þegar félög eins og Barcelona, Bayern og Real Madrid hringja þá vilja allir leikmenn fara þangað. Önnur félög þurfa að borga meiri pening," sagði Guardiola ennfremur.
Athugasemdir
banner
banner