Newcastle vill kaupa Elanga - Memphis til Corinthians - Barca ætlar að fá Nico Williams - Casemiro og Eriksen mega fara - Kovacic íhugar framtíð sína...
banner
   þri 23. júlí 2024 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Forgangsmál hjá Liverpool
Trent Alexander-Arnold.
Trent Alexander-Arnold.
Mynd: EPA
Liverpool á enn eftir að kaupa inn nýjan leikmann í sumar, en samkvæmt The Athletic þá er annað í forgangi hjá félaginu þessa stundina

Það er í forgangi að endursemja við bakvörðinn Trent Alexander-Arnold.

Núgildandi samningur hans á að renna út næsta sumar og hefur verið talað um að Real Madrid sé með augastað á honum.

Hinn 25 ára gamli Alexander-Arnold hefur leikið allan sinn feril hjá Liverpool og er uppalinn hjá félaginu. Það er litið á hann sem framtíðarfyrirliða enska stórliðsins.

Arne Slot, nýr stjóri Liverpool, er að skoða hóp sinn og fær gott tækifæri til þess í æfingaferð í Bandaríkjunum næstu daga.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner