Fotbolti.net
14.08.26 - 19:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Besta deild kvenna: Öruggur sigur Þórs/KA í Víkinni

Besta deild kvenna: Öruggur sigur Þórs/KA í Víkinni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Víkingur R. 0 - 3 Þór/KA
0-1 Hildur Anna Birgisdóttir ('10 )
0-2 Erin Flurey ('40 )
0-3 Hulda Ósk Jónsdóttir ('75 )
Lestu um leikinn
Þór/KA er komið upp í efri hlutann eftir sigur á Víkingi í Víkinni í kvöld. Dagný Rún Pétursdóttir var hársbreidd frá því að koma Víkingi yfir snemma leiks en setti boltann rétt framhjá.

Stuttu síðar tókst Þór/KA að refsa. Hildur Anna Birgisdóttir skoraði með skoti sem fór undir Telmu Ívarsdóttur.

Jasmín Erla Ingadóttir komst í færi til að jafna metin undir lok fyrri hálfleiks en skaut rétt framhjá. Aftur tókst Þór/KA að refsa, Hildur Anna átti sendingu fram völlinn á Erin Flurey sem skoraði.

Hulda Ósk Jónsdóttir innsiglaði sigur Þórs/KA þegar stundafjórðungur var til loka leiksins. Hildur Anna tók hornspyrnu og boltinn barst til Huldu sem stóð með bakið í markið en skoraði með hælspyrnu.

Víkingur var nálægt því að skora sárabótamark í blálokin en Thea Rhode átti skot í slána. Þór/KA er í 6. sæti með 18 stig en Víkingur á botninum með 11 stig.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Breiðablik18+2537
2FH18+2437
3ÍBV18-327
4Stjarnan18+426
5Þróttur R.18-323
6Grindavík/Njarðvík18-822
7Fram18-1522
8Valur18-920
9Víkingur R.18-1120
10Þór/KA18-419
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.