Alli Jó kvartar ekki: Við erum hamingjusöm í augnablikinu

Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, þjálfari Þór/KA

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, þjálfari Þór/KA

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þór/KA fór og sótti fyrsta útisigur sinn á tímabilinu með góðum 3-0 sigri gegn botnliði Víkings á Víkingsvellinum í Bestu Deild kvenna.
„3-0 þá á maður ekkert að vera kvarta þannig jú (góður leikur). Héldum markinu hreinu og þá er auðveldara að vinna. Eftir því sem leið á leikinn héldum við minna í boltann en eftir leik, 3-0 og mikilvægur sigur og fyrsti úti sigurinn. Þá er ekki yfir neinu að kvarta."
„Erum "clinical" þegar við lendum í svona kafla þar sem við þurfum að "suffera" og náum að skora á honum, eins í seinni hálfleik náum við marki þegar þær (Víkingsliðið) er meira á boltanum. Sending frá Hildi á Erin sem klárar frábærlega í öðru markinu. Það var mjög gott mark, fyrsta markið líka gott. Síðan skorum við eftir fastleikatriði og Hulda æfði þetta í gær að nota hælinn. Við erum hamingjusöm í augnablikinu það er ekki spurning."
„Við höfum verið að verja forustu rosalega mikið og jújú þjálfarar og þeir sem eru fyrir utan völlinn vilja kannski halda meira í boltann og allskonar en við förum oft að verja forustu og það gekk vel í dag. Stundum fer um einhvern í þeim stöðum, held það hafi verið einhver læti í okkur að reyna koma orku inn á völlinn."
Með sigrinum í kvöld er Þór/KA komið í efri hluta sæti á markatölu þegar aðeins þrír leikir eru eftir þangað til deildinni er skipt. „Ég vissi þetta ekki þannig takk fyrir að láta mig vita, en já markmiðið í raun er bara einn leikur í einu og það er að ná í þrjú stig úr hverjum einasta leik. Umfram allt erum við að horfa í liðin fyrir ofan okkur og reyna að nálgast þau frekar en eitthvað annað."
Næsti leikur Þór/KA er heimaleikur gegn Val en þær hafa unnið síðustu fjóra heimaleiki. „Setjum að sjálfsögðu markið á það að vinna á heimavelli og alla leiki. Höfum náð að gera heimavöllinn okkar að einhverskonar vígi og við reynum eftir mesta megni að halda áfram að verja hann."
„Við breyttum alveg helling og einhverri nálgun hjá okkur. Erum orðnar varnarsinnaðra lið en við vorum. Eitt, tvö og þrjú erum við að verja markið okkar en svo bara með einum úrslitum og einni frammistöðu þá kemur aðeins meiri trú og svo koll af kolli. Hér erum við í dag búin að snúa því við en það er langt eftir þannig við meigum ekki fara fram úr okkur."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér í spilaranum að ofan.
