Fotbolti.net
23.08.26 - 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spámaður

Gummi Tyrfings spáir í 20. umferð Bestu deildarinnar

Guðmundur Tyrfingsson.

Guðmundur Tyrfingsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í dag hefst 20. umferð Bestu deildar karla með fimm leikjum, þar af eru fjórir leikir á sama tíma klukkan 17:00.

Guðmundur Tyrfingsson, sóknarmaður Fylkis, tók að sér það verkefni að spá í spilin fyrir þessa umferð.
Keflavík 2–1 ÍBV (17:00 í dag)
Mikið undir í þessum leik fyrir bæði lið. Það verður brjálað rok í þessum leik, eins og alltaf, en það sakar ekki því þetta eru tvö lið sem kunna vel á rokið og elska það. Keflavík mun vinna þennan leik. Nacho Heras skorar úr horni. Síðan bætir Sindri Snær öðru markinu við, eins og refur í boxinu, sem mun minna á hið fræga mark hans fyrir ÍA árið 2021 í „Great Escape“-leiknum í Keflavík. Halldór Jón skorar svo með skalla því hann er orðinn sköllóttur.

ÍA 2 - 3 FH (17:00 í dag)
Markaveisla á Skaganum sem byrjar á því að Kjartan Kári setur eitt beint úr horni og síðan eitt úr aukaspyrnu. Hann mun fagna með léttum dansi og byssufagni sem hann hefur verið að þróa í nokkur ár. Það verður mikil rigning á Skaganum sem hentar hárinu á Steinari illa, en hann nær að gleyma því í smástund og skorar með enninu. Gísli Laxdal skorar með skoti á nærstöng og mun taka ljónsfagn eins og B. Gomis gerði um árið. Oliver Stefáns verður með hnífasettið og klárar þennan leik úr hornspyrnu á 89. mínútu og fagnar með Jóa kalla.

KA 2 - 4 KR (17:00 í dag)
Eiður Smári er ekki mættur til að spila vörn fyrir norðan og Óskar eyðir litlum tíma í vörn líka. Úr því verður mikil skemmtun. Hrafn Tómasson, Jason Daði, Eiður Gauti og Aron Sig skora. Sigurpáll Sören kemur inn á í markið og ver víti eftir að Hallgrímur reynir Panenka-víti á hann. DDD skorar fyrir KA og Jeppe Pedersen með banger.

Stjarnan 1 - 1 Þór (17:00 í dag)
Mun ekki kveikja á þessum leik. Ætli ég taki ekki aukavakt á rútunni í staðinn og keyri 50 túrista á Gullfoss og Geysi í staðinn fyrir að horfa á þennan leik. Þessi lið þurfa virkilega á þessum þremur stigum að halda og leikurinn verður áhættulítill og leiðinlegur. Emil Atlason og Gyrðir skora mörk liðanna.

Víkingur R. 3 - 1 Valur (19:15 í kvöld)
Þægilegt fyrir Víking. Hrannar Snær kemur í liðið og stimplar sig inn með tveimur mörkum. Robert Orri kemur einnig inn og skorar úr langskoti, sláin inn. Valur mun síðan skora þegar Ekroth er að dúlla sér með boltann, rennur á rassinn og Tryggvi Hrafn sleppur einn í gegn og skorar með fallegri chippu.

Breiðablik 2 - 2 Fram (19:15 á morgun)
Þessi verður stál í stál. Blikar eru að ná sínum bestu mönnum til baka úr meiðslum og Fram búnir að vera sterkir. Fred verður að skemmta fólkinu í þessum leik eins og Brassarnir gera. Hann mun skora eftir að hafa tekið rainbow flick yfir Óla Val og sett boltann framhjá Antoni. Kristófer Ingi svarar úr víti. Anton Logi skorar svo huggulegt mark. En Kennie bjargar Fram með sínu tíunda marki í deildinni í sumar eftir klafs í teignum.

Fyrri spámenn:
Damir Muminovic (4 réttir)
Elmar Kári (4 réttir)
Ragnar Bragi (4 réttir)
Gísli Gotti (4 réttir)
Óðinn Bjarka (3 réttir)
Tómas Óli (3 réttir)
Daníel Freyr (3 réttir)
Tómas Guðmunds (3 réttir)
Júlíus Mar (3 réttir)
Stefán Þór (3 réttir)
Ágúst Brynjars (3 réttir)
Siggi Raggi (3 réttir)
Karl Ágúst (2 réttir)
Mattías Kjeld (2 réttir)
Viðar Örn (2 réttir)
Helga Rut (2 réttir)
Birkir Már (2 réttir)
Kári Sigfússon (2 réttir)
Siggi Hall (1 réttur)
Refur í boxinu.

Refur í boxinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gummi spáir því að Gísli skori og taki ljónsfagn.

Gummi spáir því að Gísli skori og taki ljónsfagn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Smári stýrir KA í fyrsta sinn.

Eiður Smári stýrir KA í fyrsta sinn.

Canon

Mynd: KA

Stimplar sig inn.

Stimplar sig inn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.19+4448
2KR19+2540
3Fram19+1340
4Breiðablik19+630
5ÍA19-425
6Keflavík19-425
7Valur19-523
8Stjarnan19-1221
9ÍBV19-1117
10FH19-1217
11KA19-1216
12Þór19-2815
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.