Fotbolti.net
23.09.18 - 16:47
Orri Rafn Sigurðarson

Rúnar Páll: Dæmdi leikinn ekkert spes

Auglýsing
Rúnar Páll

Rúnar Páll

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan tapaði 2-1 gegn ÍBV á Hásteinsvelli í dag og er þar af leiðandi þremur stigum á eftir Val fyrir lokaumferðina.

„Við erum ekki hress með það sem lið, leikmenn og þjálfarar að tapa hér í dag. Bara mikil vonbrigði satt best að segja," sagði Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar eftir tapið.
Stjarnan hefur einungis fengið eitt stig af síðustu sex mögulegum eftir að þeir urðu bikarmeistarar.

„Við vorum daprir í dag og erum búnir að tapa fimm stigum eftir við urðum bikarmeistarar og það er bara ekki nógu gott."

Það var mark dæmt af Stjörnunni sem að leikmenn og þjálfarar voru ekki sáttir við. Það voru níu spjöld í leiknum og mikil harka.

„Ég sá ekkert að því marki. Hann vill meina að það hafi verið brot en það er ekkert hægt að gera í því núna en svo erum við að fá dýr spjöld líka sem gerir það að verkum að leikmenn eru í banni í næsta leik hjá okkur. En það koma menn í manns stað."

„Æji hann er bara gera sitt besta en dæmdi leikinn ekkert spes á báða bóga held ég," sagði Rúnar að lokum

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.