Það er óljóst hvar bandaríska ungstirnið Sergino Dest endar þar sem FC Bayern og Barcelona hafa bæði mikinn áhuga á bakverðinum.
Dest er efnilegur bakvörður sem verður tvítugur í nóvember og á þrjá A-landsleiki að baki fyrir Bandaríkin.
Dest ruddi sér leið inn í byrjunarliðið hjá Ajax á síðustu leiktíð og er falur fyrir 25 milljónir evra.
Spænskir fjölmiðlar segja Barcelona vera búið að komast að samkomulagi við Ajax á meðan þýskir fjölmiðlar segja Bayern hafa náð samkomulagi við Ajax.
Það verður áhugavert að sjá hvar Dest endar en hann getur einnig spilað sem vinstri bakvörður.
Last updates... after personal terms agreed 10 days ago with Bayern Münich, Sergiño Dest is now really, really tempted by Barcelona bid. Both clubs are still in the race/in talks with Ajax, but Dest himself is now seriously considering Barça as next destination. 🚨 #Dest #FCB
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) September 23, 2020
Athugasemdir