Daníel Hafsteinsson og Kristján Gauti Emilsson verða væntanlega ekki með FH fyrr en eftir landsleikjahléið í október.
Fjórir leikir eru framundan í Pepsi Max-deildinni og þessir leikmenn missa af þeim leikjum.
Fjórir leikir eru framundan í Pepsi Max-deildinni og þessir leikmenn missa af þeim leikjum.
Daníel hefur ekkert spilað í þessum mánuði en Kristján Gauti fór út af meiddur gegn Breiðabliki á dögunum.
„Daníel Hafsteins þarf bara hvíld. Við þurfum að bíða og sjá. Hann kemur væntanlega ekki fyrr en eftir landsleikjahlé," sagði Eiður Smári Guðjohnsen, þjálfari FH, í viðtali við Guðmund Hilmarsson á Facebook síðu félagsins.
„Við þekkjum sögu Kristjáns Gauta og við höfum reynt að gera plan fyrir hann þar sem við horfum til lengri tíma. Hann kemur líklega ekki fyrr en eftir landsleikjahlé."
Atli Guðnason meiddist gegn Víkingi í síðustu viku en hann var fjarri góðu gamni gegn Fylki og missir einnig af stórleiknum við Val annað kvöld.
Athugasemdir