Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 23. nóvember 2020 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Leboeuf: Ég hef áhyggjur af Martial
Mynd: Getty Images
Fyrrum franski landsliðsmaðurinn Frank Leboeuf segist hafa áhyggjur af Anthony Martial, sóknarmanni Manchester United.

Martial hefur ekki byrjað þetta tímabil vel fyrir framan markið. Hann fékk fullt af færum til að skora gegn West Brom á laugardag en tókst ekki að finna netmöskvana.

Hinn 24 ára gamli Martial hefur skorað tvö mörk til þess á tímabilinu og hafa þau bæði komið í Meistaradeildinni.

„Ég hef áhyggjur Anthony Martial," sagði Leboeuf við ESPN. „Hann er stórkostlegur leikmaður og þegar hann er með gott sjálfstraust, þá er allt í góðu hjá honum."

„Hann spilaði með franska landsliðinu og klúðraði þremur færum gegn Portúgal. Hann klúðraði öðru færi í dag (gegn West Brom). Fyrir leikmanna í heimsklassa var það auðvelt færi. Hann verður að hafa drápseðli."

Leboeuf gagnrýndi einnig frammistöðu Manchester United. „Þetta verður að vera betra - þetta er Manchester United."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner