Fotbolti.net
23.11.22 - 19:44
Brynjar Ingi Erluson

FIFA mun ekki refsa Þjóðverjum

FIFA mun ekki refsa Þjóðverjum
Canon

Mynd: EPA

Netgíró
Alþjóðafótboltasambandið, FIFA, mun ekki refsa Þýskalandi fyrir mótmæli þeirra fyrir leikinn gegn Japan á HM í Katar í dag.
FIFA hefur til þessa hafnað öllum liðum að bera fyrirliðabönd í regnbogalitum af virðingu við Katar og þeirra menningu.

Fólki hefur verið neitað um inngöngu á leikvanga í Katar þar sem klæðnaður þeirra hefur þótt of litprúður.

Þjóðverjar vildu koma skilaboðum á framfæri með því að mótmæla þessari þöggun FIFA og settu leikmenn því hendur fyrir fyrir munninn í myndatöku fyrir leikinn.

Þeim verður ekki refsað fyrir atvikið en þetta kemur fram á Sky Sports.

Þýskaland tapaði óvænt fyrir Japan, 2-1, eftir að hafa verið með mikla yfirburði í fyrri hálfleiknum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.