Middlesbrough hefur rekið knattspyrnustjóran Garry Monk eftir aðeins sex mánuði í starfi.
Monk stýrði Middlesbrough nú síðast í dag þar sem þeir sigruðu Sheffield Wednesday á útivelli, 1-2.
Hann var ráðinn til Middlesbrough með því markmiði að koma liðinu aftur upp í úrvalsdeildina en þeir eru þessa stunda staddir í 9. sæti Championship deildarinnar með 35 stig, þremur stigum frá umspilssæti.
Það er spurning hvert Garry Monk fer næst en liðið sem hann þjálfaði fyrir nokkrum árum, Swansea, er í stjóraleit þessa stundina eftir að hafa rekið Paul Clement í vikunni.
Athugasemdir