Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 24. janúar 2020 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ísland um helgina - Barist um toppsæti riðlanna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Það er nóg um að vera í íslenska boltanum um helgina þar sem leikir eru á dagskrá í ýmsum æfingakeppnum.

Veislan byrjar strax í kvöld þegar Valur mætir Leikni R. í karlaflokki Reykjavíkurmótsins. Liðin mætast í toppslag B-riðils og er þetta hreinn úrslitaleikur um efsta sætið. Valur er með sex stig og Leiknir R. fjögur.

Víkingur R. og Fram eigast einnig við og getur Víkingur enn hreppt annað sætið af Leikni. Fram er stigalaust eftir tvo tapleiki.

Á laugardaginn eigast FH og Breiðablik við í Fótbolta.net mótinu. Blikar eru á toppi riðils 1 í A-deild með sex stig eftir tvær umferðir. FH er aðeins með eitt stig en getur enn náð öðru sætinu ef HK tapar gegn ÍBV.

ÍA og Grótta eigast þá við í úrslitaleik í riðli 2 í A-deildinni. Sigurvegarinn hirðir toppsætið af Stjörnunni. Jafntefli nægir heimamönnum á Akranesi en ekki gestunum af Seltjarnarnesinu.

Valur og Víkingur R. eigast þá við í A-riðli Reykjavíkurmóts kvenna. Þar er Víkingur án stiga og markatöluna 0-11 á meðan Valur er með þrjú stig eftir óvænt tap gegn Fylki í fyrstu umferð.

Fleiri leikir eru á dagskrá og má sjá lista yfir þá hér fyrir neðan.

Föstudagur:
Reykjavíkurmót karla - B-riðill:
19:00 Leiknir R. - Valur (Egilshöll)
21:00 Víkingur R. - Fram (Egilshöll)

Fótbolti.net mótið - C-deild, riðill 1:
19:00 Hvíti riddarinn - KFS (Varmárvöllur - gervigras)
20:00 Kári - KV (Akraneshöllin)

Kjarnafæðismót kvenna:
20:00 Hamrarnir - Fjarðab/Höttur/Leiknir (Boginn)

Kjarnafæðismót karla - A-deild:
21:45 Leiknir F. - Magni (Boginn)

Laugardagur:
Fótbolti.net mótið - A-deild, riðill 1:
10:45 FH - Breiðablik (Skessan)
12:00 HK - ÍBV (Kópavogsvöllur)

Fótbolti.net mótið - A-deild, riðill 2:
11:30 ÍA - Grótta (Akraneshöllin)

Reykjavíkurmót karla - A-riðill:
15:15 ÍR - KR (Egilshöll)

Reykjavíkurmót kvenna - A-riðill:
17:15 Valur - Víkingur R. (Egilshöll)

Faxaflóamótið - B-riðill:
14:00 Augnablik - HK (Kópavogsvöllur)
16:00 Afturelding - Grótta (Varmárvöllur - gervigras)
16:00 ÍBV - ÍA (Óákveðið)

Kjarnafæðismót karla - A-deild:
13:00 KA - Dalvík/Reynir (Dalvíkurvöllur)

Kjarnafæðismót karla - B-deild:
19:45 Kormákur/Hvöt - KF (Boginn)

Sunnudagur:
Fótbolti.net mótið - B-deild, riðill 1:
12:00 Selfoss - Víkingur Ó. (Akraneshöllin)

Reykjavíkurmót kvenna - A-riðill:
15:15 Fylkir - Þróttur R. (Egilshöll)

Reykjavíkurmót karla - A-riðill:
17:15 Þróttur R. - Fylkir (Egilshöll)

Faxaflóamótið - A-riðill:
19:00 Keflavík - Breiðablik (Reykjaneshöllin)

Kjarnafæðismót kvenna:
17:15 Tindastóll - Völsungur (Boginn)
Athugasemdir
banner
banner