Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 24. janúar 2021 12:20
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Harley Willard æfir nýja aukaspyrnutækni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Harley Bryn Willard er einn af bestu leikmönnum Lengjudeildarinnar og er hann að æfa nýja aukaspyrnutækni sem er ansi skemmtileg.

Harley tekur furðulegt tilhlaup til að láta þessa tækni virka, hann byrjar nær markinu heldur en knötturinn sjálfur.

Hér fyrir neðan má sjá myndband af aukaspyrnutækninni hans Harley sem virðist svínvirka á auðum velli.

Harley hefur verið frábær frá komu sinni til Íslands og er búinn að gera 18 mörk í tæplega 40 leikjum í næstefstu deild.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner