Fotbolti.net
24.01.24 - 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Chicharito heim til Chivas (Staðfest)

Chicharito heim til Chivas (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Javier Hernandez, eða Chicharito eins og hann er oft kallaður, er að snúa aftur heim til Chivas. Félagið þar sem Chicharito ólst upp hjá heitir Guadalajara.

Mexíkóski framherjinn er þekktastur fyrir tíma sinn hjá Manchester United en hann var þar á árunum 2010-2015 og varð hann í tvígang enskur meistari. Hann skoraði síðasta markið sem United skoraði undir stjórn Sir Alex Ferguson í 5-5 jafntefli gegn WBA. Alls skoraði hann 59 mörk í 157 leikjum fyrir United.

Hann hefur einnig leikið með Real Madrid, Sevilla, West Ham og Bayer Leverkusen á sínum ferli.
Chicharito er 35 ára og var hann síðast á mála hjá LA Galaxy í Bandaríkjunum. Hann kemur til Guadalajara á frjálsri sölu. Hann missti af síðasta tímabili þar sem hann var að jafna sig eftir að hafa slitið krossband.

Hann lagði landsliðsskóna á hilluna árið 2019 eftir að hafa skorað 52 mörk í 109 landsleikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.