Fotbolti.net
24.01.24 - 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Emmanuel Dennis aftur í Watford (Staðfest) - Stór launalækkun

Emmanuel Dennis.

Emmanuel Dennis.

Canon

Mynd: EPA

Sóknarmaðurinn Emmanuel Dennis er genginn aftur í raðir Watford á láni frá Nottingham Forest.
Dennis er 26 ára gamall og gerði garðinn frægan þegar hann skoraði tíu mörk og gaf sex stoðsendingar í ensku úrvalsdeildinni tímabilið 2021-22, en það dugði ekki til að bjarga Watford frá falli.

Dennis varð eftirsóttur í kjölfarið og skipti til Nottingham Forest en átti erfitt uppdráttar þar. Hann var því lánaður til Istanbul Basaksehir í tyrkneska boltanum síðasta sumar en hefur ekki fundið taktinn þar.

Hann var ekki lengur inn í myndinni í Tyrklandi og fékk því leyfi til að fara aftur til Watford þar sem hann naut sín svo vel fyrir nokkrum árum síðan.

Hann tekur á sig 70 prósent launalækkun til að ganga í raðir Watford en hann ætlar að hjálpa liðinu að komast aftur upp í ensku úrvalsdeildina.

<b>Enski boltinn</B> - Jóhann Birnir ræðir Watford, Man Utd og fleira

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.