Klopp: Þetta er fullkomið

Jürgen Klopp

Mynd: EPA

Liverpool vann síðast árið 2022

Mynd: EPA

Jürgen Klopp

Mynd: EPA
Jürgen Klopp stýrði Liverpool áfram í úrslitaleik enska deildabikarsins í kvöld með 3-2 samanlögðum sigri á Fulham á Craven Cottage, en hann var hæst ánægður fyrir hönd leikmanna og getur ekki beðið eftir að mæta Chelsea.
Liverpool gat gert út um leikinn í fyrri hálfleik en lét mark Luis Díaz duga.
Fulham kom með kraft í síðari. Issa Diop jafnaði og virkaði vörn Liverpool óörugg. Gestirnir héldu út og fögnuðu því að vera komnir í úrslit.
Liverpool mætir Chelsea í úrslitum, en þessi lið mættust einmitt í úrslitum árið 2022 þar sem Liverpool vann eftir stórskemmtilega vítakeppni.
„Þetta er frábært. Við höfum fengið að upplifa þetta áður og vitum við hverju er að búast og það aftur gegn Chelsea. Vá, þvílík saga,“ sagði Klopp.
„Maður á aldrei að taka því sem sjálfsögðum hlut ef þú ert hluti af liði sem getur barist um titla. Þessi bikarleikur bauð upp á allt. Opinn leikur og í seinni byrjuðu þeir svolítið villt. Við skorum ekki og þeir ná í jöfnunarmark, en strákarnir gerðu rosalega vel og er ég afar ánægður með þetta.“
„Það eina sem telur í lokin er að við erum komnir áfram. Þessir ungir hafa verið ótrúlegir og ég var svo ánægður að sjá viðbrögð þeirra inn í klefa. Þeir eru allir stórkostlegir og hafa lagt mikla vinnu í þetta. Þetta var ekki kvöldið til að skína heldur til að komast í úrslit. Þú heyrðir frá Marco Silva hvað það myndi þýða fyrir Fulham að komast í úrslit, þannig við þurftum að sanna okkur og við gerðum það.“
„Það er allt frábært við úrslit deildabikarsins. Í kringum það verðum við líka að vera með einbeitingu á öðrum keppnum og það munum við gera. Þetta er svo fullkomið. Wembley er sérstakur staður og ég er ánægður fyrir hönd allra sem koma að þessu að fá að upplifa það,“ sagði Klopp í lokin.