Fotbolti.net
24.01.24 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Obafemi til Millwall á láni frá Burnley (Staðfest)

Obafemi til Millwall á láni frá Burnley (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Enski framherjinn Michael Obafemi er genginn til liðs við MIllwall á láni frá Burnley út tímabilið.

Hann er annar leikmaðurinn sem liðið fær til sín í glugganum en Japhet Tanganga gekk til liðs við félagið frá Tottenham fyrr í þessum mánuði.

Burnley festi kaup á Obafemi síðasta sumar eftir að hann gekk til liðs við félagið á láni frá Swansea fyrir ári síðan. Hann kom við sögu í tveimur leikjum á þessari leiktíð.

Þessi 23 ára gamli framherji á að baki 11 landsleiki fyrir írska landsliðið og skorað tvö mörk.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.