24.01.24 - 21:30
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu atvikið: Þjálfari Union fékk rauða spjaldið fyrir að ráðast á Sane

Atvikið umtalaða

Mynd: Getty Images

Atvikið umtalaða

Mynd: Getty Images
Nenad Bjelica, þjálfari Union Berlín, fékk að líta rauða spjaldið í leik liðsins gegn Bayern München í kvöld fyrir að leggja hendur á andlit Leroy Sane, leikmann Bayern.
Boltinn fór úr leik og tók Bjelica upp boltann. Sane vildi fá hann en Bjelica hélt boltanum frá honum,
Sane gerði heiðarlega tilraun til að taka boltann en þá brást Bjelica við með því að setja hendur sínar í andlit Sane, sem skiptist á orðum við þjálfarann.
Bjelica lagði aftur hendur á Sane áður en þeir voru aðskildir, en fyrir þetta fékk Bjelica að líta rauða spjaldið. Staðan er 1-0 fyrir Bayern þegar lítið er eftir.
Hægt er að sjá atvikið hér fyrir neðan.

Union Berlin will have to do without head coach Nenad Bjelica for their next three Bundesliga matches due to his unsportsmanlike behavior.
— DW Sports (@dw_sports) January 25, 2024
In his side's game against Bayern, the Union coach was shown a straight red card for twice shoving Bayern forward Leroy Sane in the face. pic.twitter.com/NVwRdJ7b5U