Þróttur tilkynnti í dag félagið væri búið að ná samkomulagi við Mollee Swift um að leika með liðinu í sumar.
Swift er bandarískur markvörður sem skrifar undir tveggja ára samning. Í tilkynningu Þróttar segir að Swift muni verja mark Þróttar.
Íris Dögg Gunnarsdóttir hefur varið mark liðsins síðustu þrjú árin en hún varð samningslaus eftir að síðasta tímabili lauk.

Úr frétt Þróttar:
Mollee er uppalinn í Nebraska, fædd árið 2001, hún lék með sterku liði Louisiana State háskólans í bandaríska háskólafótboltanum og á að baki fjögur glæsileg ár með skólanum sem aðalmarkvörður og fyrirliði liðsins um hríð.
Á háskólaferli sínum setti hún hvert metið á fætur öðru í marki LSU skólans. Mollee mun styrkja lið Þróttar fyrir átökin í Bestu deildinni á þessu ári og binda Þróttarar miklar vonir við hana.
Mollee er væntanlega til landsins innan skamms og verður klár í slaginn snemma í febrúar.
Komnar
Mollee Swift frá Bandaríkjunum
Ragnheiður Ríkharðsdóttir frá KR (var á láni)
Farnar
Katla Tryggvadóttir til Svíþjóðar
Katie Cousins í Val
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir til Breiðabliks
Samningslausar
Tanya Laryssa Boychuk
Mikenna McManus
Hildur Laila Hákonardóttir
Þórdís Nanna Ágústsdóttir
Una Sóley Gísladóttir
Íris Dögg Gunnarsdóttir
Margrét Edda Lian Bjarnadóttir
Athugasemdir