Fotbolti.net
24.01.24 - 21:34
Brynjar Ingi Erluson

Þýskaland: Dier spilaði sinn fyrsta leik er Bayern lagði Union Berlín

Eric Dier í sínum fyrsta leik með Bayern

Eric Dier í sínum fyrsta leik með Bayern

Canon

Mynd: Getty Images

Bayern 1 - 0 Union Berlin
1-0 Raphael Guerreiro ('46 )
Bayern München var með mikla yfirburði er liðið lagði Union Berlín að velli, 1-0, í þýsku deildinni í kvöld.

Heimamenn fengu urmul af færum til að gera út um leikinn í fyrri hálfleik en Frederik Ronnow var að eiga stórleik í marki Union.

Enski varnarmaðurinn Eric Dier kom inn af bekknum í hálfleik, hans fyrsti leikur fyrir Bayern frá því hann kom frá Tottenham og kom sigurmarkið fljótlega eftir það. Raphael Guerreiro gerði það eftir að hann hirti frákast.

Harry Kane kom boltanum í netið nokkrum mínútum síðar en það var dæmt af vegna rangstöðu.

Nenad Bjelica, þjálfari Union, fékk að líta rauða spjaldið þegar stundarfjórðungur var eftir af leiknum fyrir að ráðast á Leroy Sane, leikmann Bayern. Bjelica var steinhissa á að hafa fengið rautt, þó það hafi verið verðskuldað.

Bayern var líklegt til að bæta við undir lokin en aftur kom Ronnow til bjargar í markinu.

Lokatölur 1-0 Bayern í vil sem er í öðru sæti með 44 stig, fjórum á eftir Bayer Leverkusen. Union er á meðan í 15. sæti, þremur stigum fyrir ofan fallsæti.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.