Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mán 24. febrúar 2020 14:30
Magnús Már Einarsson
Vilja amk 30% hlutfall kvenna í stjórnum og nefndum KSÍ
Mynd: KSÍ
Í tengslum við ársþing KSÍ í Ólafsvík á laugardaginn kynnti stjórn KSÍ þá ákvörðun sína að gera kröfu um að hlutfall kvenna verði a.m.k. 30% í stjórnum og nefndum KSÍ innan tveggja ára.

Borghildur Sigurðardóttir formaður starfshóps um heildarendurskoðun kvennaknattspyrnu og stefnumótun til framtíðar kynnti minnisblað frá einum af starfandi vinnuhópum um málið í tengslum við ársþing KSÍ.

Verkefni hópsins er að koma með tillögur að tímasettum aðgerðum til að auka hlut kvenna í íslenskri knattspyrnu sem KSÍ hafi forystu um að innleiða í samvinnu við aðildarfélög sín. Vinnuhópurinn áætlar að leggja fram aðgerðaáætlun fyrir sumarið 2020.

Til þess að styðja við starf vinnuhópsins, flýta fyrir mikilvægri þróun í jafnréttismálum og vera til fyrirmyndar þarf KSÍ að taka skýr og táknræn skref til að jafna hlut kynjanna í knattspyrnunni á Íslandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner